Ferðaþjónusta við Bjargtanga
Á Látrabjargi og í Látravík er ekki að finna neina eiginlega þjónustu við ferðamenn.
Á Bjargtöngum er þó upplýsingaskilti og á Brunnum, yst í víkinni áður en komið er að
Bjargtöngum, er tjaldstæði með salerni. Tjöldun á Brunnum er ókeypis og öllum heimil
en farið er fram á að gestir gangi vel um.
Í Breiðuvík er rekin ferðaþjónusta.
Þar er boðið uppá gistingu og tjaldstæði.
Sjálfvirk
veðurathugunarstöð
er í vitanum á Bjargtöngum.