Fundargerð aðalfundar árið 2006 fyrir Bjargtanga,
félag land- og sumarhúsaeigenda á Hvallátrum við Látrabjarg
Fundurinn var haldinn í hátíðarsal Stýrimannaskólans laugardaginn 6. maí 2006.
Þeir sem mættir voru skráðu sig í fundarbók, fundarritari taldi 47 fundarmenn við upphaf fundar.
Þorvaldur Búason, formaður, lagði fram tillögu um Birgi Hrafnkelsson sem fundarstjóra og Sverri Þorvaldsson sem ritara, og tók fundurinn undir þá skipan.
Fundurinn var settur 14:16.
Fundarstjóri kynnti dagskrá fundarins, sem í samræmi við lög félagsins var svo:
Skýrsla stjórnar
Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
Lagabreytingar
Kjör formanns
Kjör meðstjórnenda
Kjör endurskoðanda
Ákvörðun um árgjöld félagsins
Önnur mál
Þorvaldur Búason formaður kom þá upp og hóf mál sitt með kynningu á heimasíðu félagsins, og stiklaði síðan á stóru í skýrslu stjórnar, sem er hægt að nálgast í heilu lagi á heimasíðu félagsins.
Sólveig Erlendsdóttir lagði síðan fram endurskoðaða reikninga félagsins og fór yfir þá. Athugasemd kom úr sal að nota ætti hugtakið „skoðunarmaður“ í stað „endurskoðandi“ hjá almennum félögum.
Fundarstjóri las næst upp tillögu um breytingu á lögum félagsins frá stjórn, um að félagið geti fengið kennitölu og átt bankareikning í eigin nafni. Tillagan hljóðar svo:
Ákvörðun um slit félagsins verður aðeins tekin á lögmætum aðalfundi með atkvæðum
tveggja þriðju hluta fundarmanna, og skulu eignir þess þá renna til
Björgunarsveitarinnar Bræðrabandið (kt. 471289-1169).
Tillagan var samþykkt með 43 greiddum atkvæðum.
Næst kallaði fundarstjóri eftir tillögum um formann félagsins og komu tillögur úr sal um Þorvald Búason, sem var kjörinn einróma við lófatak fundarmanna.
Næst kynnti fundarstjóri að kjósa ætti meðstjórnendur félagsins. Jóna Margrét Kristjánsdóttir kvaddi sér hljóðs og gat þess að hún hefði tekið þátt í undirbúningi að stofnun félagsins og setið í stjórn félagsins nú í eitt ár, og átt þar ánægjulegt samstarf, en þrátt fyrir að hún hefði verið kjörin til tveggja ára óskaði hún eftir að ganga úr stjórn að þessu sinni. Fundarmenn þökkuðu Jónu Margréti hennar störf við lófatak.
Fundarstjóri kynnti þá þann fjölda meðstjórnenda sem kjósa ætti á þessum fundi fyrir hönd hvers bæjar. Nokkur umræða skapaðist um hvernig yrði kjörið um eftirmann Jónu Margrétar. Fundarstjóri lagði til að fyrst yrði kjörið um laus sæti í aðalstjórn, til tveggja ára, síðan yrði kjörið sérstaklega um eftirmann Jónu Margrétar, til eins árs. Að lokum yrðu kjörnir varamenn til eins árs, einn frá hverjum bæ.
Til aðalstjórnar komu tillögur um Marías Sveinsson frá Heimabæ og Hrafnkel Þórðarson frá Húsum og voru þeir kjörnir einróma við lófatak.
Tillaga kom um Gísla Má Gíslason til setu í aðalstjórn fyrir hönd Heimabæjar í stað Jónu Margrétar, til eins árs, og var hann kjörinn einróma við lófatak.
Að lokum komu tillögur um varamenn, Rögnu Þórðardóttur frá Húsum, Ingólf Helgason frá Heimabæ, Hafliða Árnason frá Miðbæ og voru öll kjörin einróma við lófatak.
Næst var gengið til kjörs um endurskoðanda (eða skoðunarmann) og kom tillaga um Sigurð Valtýsson, sem var samþykkt einróma við lófatak.
Að þessu loknu var gert fundarhlé (15:25).
Í fundarhléi var félagsmönnum til glöggvunar birtur á sýningartjaldi listi yfir embættismenn félagsins eins og þeir eru að loknu kjöri á fundinum:
Formaður, kjörinn til eins árs:
Þorvaldur Búason, Miðbæ, kjörinn á aðalfundi 2006
Aðalstjórn:
Kristinn Guðmundsson, Húsum, kjörinn til tveggja ára á stofnfundi 2005
Gísli Már Gíslason, Heimabæ, kjörinn til eins árs á aðalfundi 2006, í stað Jónu Margrétar Kristjánsdóttur
Sólveig Erlendsdóttir, Miðbæ, kjörin til tveggja ára á stofnfundi 2005
Hrafnkell Þórðarson Húsum, kjörinn til tveggja ára á aðalfundi 2006
Marías Sveinsson, Heimabæ, kjörinn til tveggja ára á aðalfundi 2006
Varastjórn (kjörin til eins árs á aðalfundi 2006):
Ragna Þórðardóttir, Húsum
Ingólfur Helgason, Heimabæ
Hafliði Árnason, Miðbæ
Skoðunarmaður (endurskoðandi), kjörinn á aðalfundi 2006:
Sigurður Valtýsson, Heimabæ
Fundi var fram haldið klukkan 15:44.
Þovaldur Búason bar fram tillögu um að félagsgjald yrði áfram 1000 kr, með þeim orðum að þess væri frekar óskandi að fleiri úr sömu fjölskyldu gerðust meðlimir, en að hækka félagsgjöld. Tillaga Þorvalds var samþykkt með lófataki.
Þá var komið að liðnum „önnur mál.“
Kristinn Guðmundsson spurðist fyrir um minnismerki um látna Látramenn, sem stendur til að reisa í Breiðuvík. Ólöf Hafliðadóttir varð fyrir svörum og gat þess að um væri að ræða afgang af sjóði átthagamóts Látramanna fyrir mörgum árum, sem hefði ávaxtast síðan þá, en vonlaust væri að ná til allra þeirra sem greiddu gjöld vegna átthagamótsins, og því hefðu Ólöf, Ardís Kristjánsdóttir og Valtýr Eyjólfsson tekið að sér að ráðstafa fénu. Einnig kom fram að merkið væri til minningar um sóknarbörn Breiðuvíkurkirkju. Jafnframt kom fram að erindið hefði verið kynnt stjórn Bjargtanga, en stjórn þess ekki tekið erindið svo að félagið Bjargtangar kæmi að öðru leyti að málinu, enda hefðu fjölmargir aðrir en félagsmenn komið að átthagamótinu. Ólöf gat þess að til stæði að afhjúpa steininn sunnudaginnn 9. júlí.
Þorvaldur formaður þakkaði fundarmönnum komuna, og gat þess að það væri ánægjulegt að fleiri hefðu séð sér fært að mæta en stjórnin hefði átt von á.
Sveinn H. Skúlason stóð upp og lét þau orð falla að félagið væri ágætur vettvangur til að auka samheldni og þjappa fólki saman, og hann hefði einmitt orðið var við að sú hefði orðið raunin.
Birgir Hrafnkelsson sagðir frá því að Þorvaldur Arnar Þorvaldsson og Þórður Kristjánsson hefðu staðið að uppsetningu heimasíðu félagsins og þakkaði fundurinn þeim með lófataki, en Birgir gat þess einnig að auk þeirra sinni Pálmi Hlöðversson, Marías Sveinsson og Birgir ritstjórn síðunnar. Birgir hvatti fundarmenn til að leggja efni til síðunnar, og gat sérstaklega að til væru drög að ábúendatali, sem þó væri langt frá því tæmandi. Þórður ræddi ábúendatalið og taldi töluvert mætti bæta þar við um eldri tíma. Jóna Margrét benti á að Hrefna Kristjánsdóttir kynni alla ábúendur Látra frá landnámi.
Sigurður Valtýsson lagði ríka áherslu á að allir fundarmenn fengju sendar fundargerðir stjórnar. Þórður Kristjánsson svaraði að stjórnin hefði talið að ekki væri rétt að birta fundargerðir stjórnar á opnu vefsvæði. Marías Sveinsson taldi það ekki tíðkast almennt í félögum að fundargerðir stjórnar væru sendar út. Nokkur frekari umræða var um þetta.
Valtýr Eyjólfsson spurðist fyrir um hvort sameiginleg yfirlýsing vegna grenndarkynningar Vesturbyggðar hefði verið rædd. Þorvaldur formaður kvað þetta hafa verið rætt í stjórn án niðurstöðu að svo stöddu, en hver og einn gæti gert athugasemdir sínu nafni.
Erla Hafliðadóttir sagði frá fundi í Vesturbyggð þar sem komið hefði fram mikil neikvæðni í garð Látramanna, þar sem að þeirra mati hefðu Látramenn komið í veg fyrir að reist væri hreinlætisaðstaða á Bjargtöngum. Þorvaldur lét koma fram að viðskiptin við Vesturbyggð væru nú birt á vef félagsins einmitt vegna svona umtals.
Fundarritari las síðan upp fundargerð í samræmi við lög félagsins og var hún samþykkt af fundinum, með fyrirvara um smávægilegar breytingar.