Forsíða
Frá stjórn
Félagatal
Myndir
Gamlar myndir
Örnefnaskrá
Ferðaþjónusta
Fundargerð aðalfundar árið 2007 fyrir Bjargtanga,
félag land- og sumarhúsaeigenda á Hvallátrum við Látrabjarg

Aðalfundur haldinn 5. maí 2007.

Gísli Már Gíslason setti fundinn og bauð fólk velkomið.
Tilnefndi Birgi Hrafnkelsson sem fundarstjóra og Bylgju Valtýsdóttur sem ritara sem var samþykkt.

Fundarstjóri fór yfir dagskrá fundar skv. auglýstri dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  3. Lagabreytingar
  4. Kjör formanns
  5. Kjör meðstjórnenda
  6. Kjör endurskoðanda
  7. Ákvörðun um árgjöld félagsins
  8. Önnur mál
1. Skýrsla stjórnar
Gísli Már Gíslason flutti skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2006 – 2007.

2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
Gísli Már lagði fram endurskoðaða reikninga í fjarveru Sólveigar Erlendsdóttur, gjaldkera félagsins. Reikningar voru samþykktir.

3. Lagabreytingar
Engar tillögu lágu fyrir um lagabreytingar.

4. Kjör formanns
Óskað var eftir framboðum. Stungið var uppá Gísli Má Gíslasyni sem var kosinn samhljóða.

5. Kjör meðstjórnenda
Hrafnkell Þórðarson og Marías Sveinsson voru kosnir í fyrra og sitja áfram. Fundarstjóri óskaði eftir tilnefningum og gáfu eftirtaldir kost á sér í stjórn:

Kristinn Guðmundsson Húsum
Sólveig Erlendsdóttir, Miðbæ
Hafliði Árnason, Miðbæ

Þau voru kosin samhljóða, og eru kosin til tveggja ára.

Óskað var eftir tilnefningum í varastjórn. Stungið var uppá Guðlaugu Ragnarsdóttur sem gaf ekki kost á sér. Stungið var uppá eftirfarandi í varastjórn:

Ragna Þórðardóttir Húsum til eins árs
Erlendur Kristjánsson Miðbæ til eins árs
Ingólfur Helgason, Heimabæ til eins árs

Þau voru kosin samhljóða, og eru kosin til eins árs.

6. Kjör endurskoðenda
Formaður stakk uppá Sigðurði Valtýssyni sem var kjörinn samhljóða.

7. Ákvörðun um árgjald
Árgjaldið er 1000 krónur og var tillaga að óbreyttu gjaldi borin undir fundinn. Tillagan var samþykkt einróma. Umræður voru um hvar ætti að borga og var ákveðið að skerpa enn frekar á því og tók formaður það að sér.

8. Önnur mál
Formaður sagði frá bréfi um framkvæmdir við Brunna og erindi frá Siglingamálastofnun sem hefur óskað eftir tengilið frá stjórninni. Með sveitarstjórn, Umhverfisstofnun og Fornminjanefnd á að skoða svæðið til að ákveða hvort eigi að fara í varnarframkvæmdir með sjóvarnargörðum. Ef af verður þarf að fara í grjótnám í landi Látra. Sjór er búinn að brjóta verulega úr landinu. Stjórnarliðar eru ekki á eitt sáttir hvort að um raunverulegt landbrot á grónu landi sé að ræða. Myndir sína að gamlar búðir eru að hrynja og skemmast. Formaður spurði hvort félagið væri tilbúið að tilnefna tengilið til að vinna í þessu máli.
Marías benti á að fundurinn þyrfti fyrst að ákveða hvort félagið væri tilbúið að fara í þessar framkvæmdir og því næst að tilnefna tengilið. Gísli Már las upp tillögu sem lá fyrir fundinum. Almennar umræður spunnust um hvað þessi framkvæmd fæli í sér, stærð og umfang hennar og þær breytingar sem orðið hafa á náttúrunni og fjörunni vegna ágangs sjávar.
Marías ítrekaði að hann teldi mikilvægt að fara í þessar framkvæmdir.
Valtýr sagði frá mælingum sínum á landbroti að Kúlureit á hverju ári og Kristinn sagði að um þrír metrar hefðu farið af landi frá því í haust. Umræður spunnust um hugsanlegt grjótnám og framkvæmd og ferlið sem aðgerðin felur í sér. Tillaga kom fram um að ef tillagan yrði samþykkt að þá yrðu þrír tengiliðir, einn frá hverjum af bæjunum þremur Miðbæ, Húsum og Heimabæ, sem myndu verða tengiliðir vegna væntanlegs grjótnáms.
Eftirfarandi tillaga var borin undir fundinn af fundarstjóra:

,,Aðalfundur samþykkir að leyfa grjótnám í landi Hvallátra til að byggja garð
til varnar sjógangi á Brunnum.“

Tillagan var samþykkt af fundarmönnum. Í framhaldi af ofangreindri tillögu var eftirfarandi tillaga borin undir fundinn af fundarstjóra:

,,Tilnefndur verði tengiliður við Siglingamálstofnun.
Þessi tengiliður hafi jafnframt 2 aðra með sér til samstarfs.“

Þessi tillaga var samþykkt af fundarmönnum, og stungið var uppá Kristni Guðmundssyni sem tengilið og samþykktu fundarmenn það einnig. Óskað var eftir tveimur öðrum til að starfa með Krisni, einum frá Miðbæ og einum frá Heimabæ. Stungið var uppá Gísla Má frá Heimabæ og Hafliða frá Miðbæ og voru þeir báðir samþykktir.
Ólöf Hafliðadóttir ræddi um peninga sem urðu eftir að gerður var upp kostnaðurinn við minnismerkið í Breiðvík. Hún lagði til að féð yrði látið renna til Bjargtanga og var það samþykkt.

Fundargerð var lesin upp og samþykkt af fundarmönnum.

Gísli Már þakkaði kjör og þakkaði fyrri stjórn fyrir vel unnin störf. Sérstakar þakkir fékk Þorvaldur Búason fráfarandi formaður.




Birgir Hrafnkelsson (sign.)Bylgja Valtýsdóttir (sign.)
fundarstjórifundarritari