3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
Sólveig Elendsdóttir lagði fram endurskoðaða reikninga félagsins. Þeir voru samþykktir án athugasemda.
4. Lagabreytingar
Engar tillögur lágu fyrir um lagabreytingar.
5. Kjör formanns
Gísli Már Gíslason (Heimabæ) var endurkjörinn samhljóða til eins árs.
6. Kjör meðstjórnenda
Hrafnkell Þórðarson (Húsum) og Marías Sveinsson voru kjörnir til tveggja ára 2006. Þeir gáfu kost á sér áfram og voru endurkjörnir samhljóða.
Í varastjórn voru kjörin á seinasta aðalfundi til eins árs: Ragna Þórðardóttir (Húsum), Ingólfur Helgason (Heimabæ) og Erlendur Kristjánsson. Þau gáfu kost á sér áfram og voru endurkjörin samhljóða.
7. Kjör skoðunarmanns reikninga
Sigurður Valtýsson er skoðunarmaður reikninga. Hann gaf kost á sér áfram og var kosinn samhljóða.
8. Ákvörðun um árgjald
Árgjald félagsins var 1000 kr. og var ákveðið að það yrði óbreytt.
9. Önnur mál
Stjórn mun skýra og skerpa á lögum um stjórnarkjör og þá sérstaklega kjör formanns.
Pálmi Hlöðversson sagði frá að gsm símasamband væri mun betra á Látrum en var og þyrfti rétt að fara upp á Látraháls til að ná sambandi.
Marías Sveinsson spurði hvort ekki væri gott að skipta upp því landi sem nú er utan girðingar og telst óskipt land á Látrum til að tryggja eignarétt ef gengið yrði lengra fram í þjóðnýtingu/friðlýsingu.
Margir vilji byggja í framtíðinni og huga þyrfti að því að skipta upp landinu.
Almennar umræður urðu um friðlýsingu og skipulagningu landsins.
Fram kom að hægt er að skipuleggja land í óbyggðu landi ef menn eru sammála um það.
Sigurður Valtýsson taldi oft betra að skipuleggja landið áður en því væri skipt.
Valtýr Eyjólfsson lagði til að athugað yrði gaumgæfilega hvort ekki væri rétt að stofna hlutafélag um landið og vísaði í því sambandi til hlutafélagsstofnunar um Suðureyri í Tálknafirði.
Sveinn H. Skúlason varpaði fram þeirri hugmynd að árvissri helgi, Látrahelgi, yrði komið á þar sem Látramenn hittust fyrir vestan og ættu saman góðar stundir.
Formanni var að lokum gefið orðið.
Hann þakkaði kjörið og sagði að hugmyndir Maríusar um skipulag Látra yrðu teknar fyrir hjá stjórn.
Landamerki væru skýr og ljós og í landamerkjabók hjá sýslumanni.
Nauðsynlegt sé að skipuleggja land til að hægt sé að fjölga sumarbústöðum.
Hinsvegar væri spurning hvort tímabært sé að skipuleggja hið óskipta land því það sé víðfemt og næði yfir Bjargið og allt land sem væri Látramegin við vatnaskil við Breiðuvík og Keflavík.
Að endingu bað Gísli fólk að fara yfir félagaskrána og athuga þar upplýsingar um netföng, ekki síst hjá þeim 30 sem ekki eiga netföng í skránni og senda sér og Sólveigu leiðréttingar og viðbætur.
Fundargerð var lesin upp og samþykkt af fundarmönnum.