Bjargtangar;
félag land- og sumarhúsaeigenda á Hvallátrum viđ Látrabjarg
Ađalfundur félagsins áriđ 2006 er bođađur laugardaginn 6. maí í húsakynnum Fjöltćkniskóla Íslands í Sjómannaskólanum viđ Háteigsveg og hefst kl.: 14:00.
Dagskrá ađalfundar er samkvćmt lögum félagsins:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Lagđir fram endurskođađir ársreikningar.
- Lagabreytingar
- Kjör formanns
- Kjör međstjórnenda
- Kjör endurskođanda
- Ákvörđun um árgjald til félagsins
- Önnur mál.
Lögin gera ráđ fyrir, ađ ađalmenn í stjórn séu kosnir til tveggja ára í senn. Eftirtaldir stjórnarmenn teljast hafa veriđ kosnir til tveggja ára á stofnfundi fyrir ári síđan: Jóna Margrét Kristjánsdóttir varaformađur (Heimabć), Kristinn Guđmundsson (Húsum) og Sólveig Erlendsdóttir gjaldkeri (Miđbć).
Ađrir í stjórn kosnir til eins árs hafa veriđ: Anna Guđrún Maríasdóttir (Heimabć), Hafliđi Árnason (Miđbć), Hrafnkell Ţórđarson (Húsum) Jóna Guđmunda Helgadóttir (Heimabć), Ragna Ţórđardóttir ritari (Húsum) og Ţorvaldur Búason formađur (Miđbć), sem ganga ţá úr stjórn.
Engar tillögur um lagabreytingar bárust stjórn frá öđrum félagsmönnum fyrir 1. apríl, en hún leggur til, ađ lögum verđi breytt ţannig, ađ félagiđ geti fengiđ kennitölu og átt bankareikning í eigin nafni. Eftirfarandi breytingu ţarf ţví ađ gera á lögunum: Í lok síđustu greinar (12. gr.) komi:
„Ákvörđun um slit félagsins verđur ađeins tekin á lögmćtum ađalfundi međ
atkvćđum tveggja ţriđju hluta fundarmanna, og skulu eignir ţess ţá renna til
Björgunarsveitarinnar Brćđrabandsins (kt. 471289-1169).“
Reynt hefur veriđ ađ safna tölvupóstföngum einstakra félagsmanna, eđa einhverra, sem eru ţeim nákomnir og taka ađ sér ađ koma erindum í tölvupósti til skila. Ţeir sem fá fundarbođ í pósti, en hafa tölvupóstfang eđa eiga einhvern nákominn, sem myndi taka ađ sér ađ vera milliliđur og koma bréfum til skila, eru vinsamlega beđnir ađ koma slíkum upplýsingum til gjaldkera félagsins Sólveigar Erlendsdóttur , Unufelli 10, 111 Reykjavík solveige@internet.is eđa senda á netfangiđ bjargtangar@gmail.com .
Stjórn Bjargtanga