Bjargtangar;
félag land- og sumarhúsaeigenda á Hvallátrum viđ Látrabjarg
Ađalfundur félagsins áriđ 2007 er bođađur laugardaginn 5. maí í húsakynnum Fjöltćkniskóla Íslands í Sjómannaskólanum viđ Háteigsveg og hefst kl.: 14:00.
Dagskrá ađalfundar er samkvćmt lögum félagsins:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Lagđir fram endurskođađir ársreikningar.
- Lagabreytingar
- Kjör formanns
- Kjör međstjórnenda
- Kjör endurskođanda
- Ákvörđun um árgjald til félagsins
- Önnur mál.
Lögin gera ráđ fyrir, ađ ađalmenn í stjórn séu kosnir til tveggja ára í
senn.
Eftirtaldir stjórnarmenn teljast hafa veriđ kosnir til tveggja ára á
stofnfundi fyrir tveimur árum og sitja enn í stjórn: Kristinn Guđmundsson
(Húsum) og Sólveig Erlendsdóttir gjaldkeri (Miđbć). Margrét Jóna
Kristjánsdóttir (Heimabć) var kosin á stofnfundinum, en gaf ekki kost á
sér til áframhaldandi setu á fundinum 2006. Í stađ Margrétar var Gísli Már
Gíslason (Heimabć) kosinn til eins árs.
Á seinasta ađalfundi voru kosin í ađalstjórn til tveggja ára (til ársins
2008): Hrafnkell Ţórđarson (Húsum) og Marías Sveinsson (Heimabć).
Í varastjórn voru kjörin á seinasta ađalfundi til eins árs: Ragna
Ţórđardóttir (Húsum), Ingólfur Helgason (Heimabć) og Hafliđi Árnason (Miđbć).
Engar tillögur um lagabreytingar bárust stjórn frá öđrum félagsmönnum
fyrir 1. apríl.
Reynt hefur veriđ ađ safna tölvupóstföngum einstakra félagsmanna, eđa
einhverra, sem eru ţeim nákomnir og taka ađ sér ađ koma erindum í
tölvupósti til skila. Ţeir sem fá fundarbođ í pósti, en hafa tölvupóstfang
eđa eiga einhvern nákominn, sem myndi taka ađ sér ađ vera milliliđur og
koma bréfum til skila, eru vinsamlega beđnir ađ koma slíkum upplýsingum
til gjaldkera félagsins Sólveigar Erlendsdóttur , Unufelli 10, 111
Reykjavík
solveige@internet.is eđa senda á netfangiđ gmg@hi.is.
Stjórn Bjargtanga